„Guð minn góður þú ert svo feit“

Illkvittnir unglingspiltar hrekkja eldri konu

„Guð minn góður þú ert svo feit,“ heyrist unglingspiltur segja við eldri konu sem starfar sem eftirlitskona í skólarútu í Bandaríkjunum. Myndbandinu hefur verið dreift víða en þar sést hvernig krakkar og unglingar hrekkja gömlu konuna af mikilli illkvittni. Hægt er að horfa á myndbandið hér fyrir ofan.

Konan í myndbandinu heitir Karen Klein. Hún er sextíu og átta ára og starfar sem skólaliði í skólarútum í bænum Greece í New York ríki.

Í myndbandinu heyrast krakkarnir kalla Karen feita, ljóta, gera grín að hárgreiðslu hennar og því að hún notar heyrnartæki. Einn segist ætla að fara og pissa á útidyrahurð hennar. Í bakgrunninum má svo heyra önnur börn skellihlæja.

En það var ekki Karen sem kvartaði við skólayfirvöld. Hún hafði aldrei greint neinum frá málinu heldur var unglingspiltur sem tók upp það sem gerðist í rútunni. Karen Segir NBC sjónvarpsstöðinni að ungir nemendur geti oft verið mjög illkvittnir. „Ég vil að drengjunum verði refsað,“ segir hún, „en ég veit ekki hvernig.“

Stuðningsyfirlýsingar við Klein hafa komið henni á óvart, en hún hefur vart undan að taka við fallegum skilaboðum á netinu, í gegnum síma og jafnvel í eigin persónu. Á myndbandinu eru helst fjórir drengir sem hrella hana mest og segja skólayfirvöld að þeim verði refsað. Raunar er búið að hræða úr þeim líftóruna því einhver lak nöfnum þeirra og símanúmerum á netið og barst einum af drengjunum rúmlega sjöhundruð hótanir.

Eftir að myndbandið var sett á netið var hrundið af stað netsöfnun fyrir konuna og var markmiðið að safna fyrir hana svo að hún gæti farið í frí frá starfi sínu og hvílt sig. Það hefur gengið eftir og gott betur, en hún hefur nú um 380 þúsund dollara til að skella sér í frí, eða tæpar 48 milljónir í íslenskum krónum.

Huffington Post greinir frá og ABC fréttastofan

Hér ræðir Karen Klein málið:


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.