Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:29 › 22. júní 2012
Ungur maður í annarlegu ástandi reyndi að varna lögreglumönnum og fangaflutningamönnum aðgang að Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Aðalmeðferð í máli Barkar Birgissonar átti að hefjast þar klukkan níu. Börkur er ákærður fyrir að hafa hrækt á dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur; fyrir brot gegn valdstjórninni og ærumeiðingar gagnvart opinberum starfsmanni.
Maðurinn reyndi að afhenda Berki eitthvað og gekk á milli Barkar og lögreglumannanna. Reyndi hann einnig að varna lögreglumönnum inngöngu að dómsalnum. Lögreglumenn reyndu að stugga við manninum, en illa gekk að ráða við hann. Þurfti því að kalla til nálæga sérsveitamenn sem á endanum handtóku manninn og yfirbuguðu hann.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013