Yfirlýsing frá Svavari Halldórssyni

Svarar fyrrverandi tengdafjölskyldu

„Það tilvik sem barnsmóðir mín vísaði til í viðtali hjá Eiríki Jónssyni var erfið stund þar sem ungar dætur okkar þurftu að verða vitni að í erfiðum sambandsslitum.“

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Svavari Halldórssyni, eignimanni Þóru Arnórsdóttur forsetaframbjóðanda. Fyrrverandi eiginkona Svavars , Kristjana Óskarsdóttir, fullyrti í viðtali við vefmiðilinn eirikurjonsson.is, að Svavar væri ofbeldismaður sem meðal annars hefði beitt ömmu hennar ofbeldi árið 2002.

„Ég var að sækja dætur mína til ömmu barnsmóður minnar, eins og ég átti rétt á. Þar sem ég geng út haldandi á yngstu dóttur minni og hinar tvær með mér, reynir hún að varna mér útgöngu. Ég færði til handlegg hennar svo við kæmumst út og af því segist hún hafa fengið marblett,“ segir hann.

„Enginn var kærður, en þetta tilvik hefur barnsmóðir mín síðan, gegn betri vitund, reynt að láta líta út sem ofbeldisverk. Ég hef alltaf haft hag og velferð barna okkar í fyrirrúmi og gert allt sem í mínu valdi hefur staðið til að láta ekki erfið sambandsslit lita tilveru þeirra. Það hefur verið aðalatriðið í mínum huga og verður það áfram og því tel ég ekki rétt að tjá mig frekar um þetta mál," segir Svavar enn fremur um málið.

Viðtalið við Kristjönu má í heild sinni nálgast hér


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.