Aðalmeðferð fór fram í máli DataCell gegn Valitor í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og flutti Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður málið fyrir Datacell.
Forsaga málsins er sú að DataCell tók á móti stuðningsframlögum fyrir WikiLeaks í fyrra og gerði samning við Valitor. Valitor lokaði hins vegar á greiðslugáttina stuttu eftir að samningurinn var gerður. Telja forsprakkar Wikileaks og Datacell að brotið hafi verið á sér og var þess krafist í dómssalnum í dag að Valitor stæði við gerða samninga.
Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks, skrifaði um málið í Fréttablaðinu í morgun og segir hann málið snerta mannréttindi og tjáningarfrelsi. „Niðurstaðan verður bautasteinn í baráttunni fyrir þá sem telja ótækt að örfá fjármálafyrirtæki, með VISA í broddi fylkingar, taki sér það ofurvald að ráða örlögum fyrirtækja eða félagasamtaka sem reiða sig á styrktarframlög,“ skrifar Kristinn og tekur fram að víða um heim verði horft til niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur.
Fyrirtækin VISA og MasterCard, sem eru nær einráð á greiðslukortamarkaði í Evrópu, hafa sætt harðri gagnrýni fyrir viðskiptabann sitt við Wikileaks. Í grein sinni segir Kristinn að samtökin hafi undirbúið málssóknir gegn viðskiptabanninu víða um heim og að á næstu vikum sé að vænta niðurstöðu í kvörtun til Samkeppnisstofnunar Evrópusambandsins.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi