Andrea „slæma stelpa“: „Það fokkar enginn í minni fjölskyldu“

Annþór og Börkur blönduðust inn í málið

Andrea Kristín „slæma stelpa“ Unnarsdóttir var í gær dæmd í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir sérlega hættulega líkamsárás og kynferðisbrot gagnvart konu í Hafnarfirði þann 22. desember síðastliðinn.

Fyrir dómi sagði Andrea að að árásin hefði ekki verið skipulögð. Engu að síður voru sýnd gögn sem sýndu sms og Facebook samskipti milli Andreu og hinna ákærðu í málinu.

Deilurnar snéru meðal annars að því að fórnarlambið í málinu á að hafa sagt sambýlismanni Andreu að hún hefði haldið framhjá honum og sýnt honum nektarmyndir af Andreu því til stuðnings. Auk þess snerust deilurnar um mótorhjól.

Þann 20. desember, tveimur dögum fyrir árásina, sendi Andrea, Jóni sambýlismanni sínum, sms skilaboð en í þeim stóð: „Það fokkar enginn í minni fjölskyldu. Ég ákvað að setja mig frekar í hergírinn heldur en sjálfsvorkunnar- og vælugír. Ég vona að þú skiljir mig, ég er búin að fá nóg.“ Jón svaraði á móti: „Sama hér.“

Andrea sagðist kannast við að hafa sent skilaboðin en það hafi verið vegna þess að fórnarlambið hefði hótað því að setja mjög persónulegar myndir af henni á netið og hefði logið til um framhjáhald hennar.

Annþór Kristinn Karlsson og Börkur Birgisson blandast líka inn í málið en í deilum fyrrum vinkvennana höfðu þær samband við þá, hvor í sínu lagi. Andrea sendi Berki sms skilaboð 21. desember þar sem hún sagði: „Elli er batteríslaus þannig að hringdu bara í þennan síma. Dótið hennar er allt hér ennþá. Ég vil ekki sjá þetta fokking drasl hingað, en ég verð að fá símann minn. Hún er á svaka keyrslu núna og þykist vera búin að tala við X og þykist vera að fara að hitta þig og Anna, hehehe kíktu endilega sem fyrst vinur.“ Ákærða sagði að um væri að ræða Börk Birkisson og Anni væri Annþór Karlsson.“

Fyrr hafði fórnarlambið haft samband við Annþór og beðið hann um að stilla til friðar.

Andrea sendi einnig skilaboð til þriggja aðila úr síma sínum þetta sama kvöld þar sem hún sagði: „Veiðileyfi á A var gefið út á A fyrir skömmu. Kvikindið hótaði fjölskyldu minni, reyndi að kúga X, drullaði yfir Grétar og Hilmar Leifs blandast í umræðuna líka. Endilega láttu það berast, gæskan.“

Hún sagði að þó að hún hefði sent þetta þá væri hún ekki að skipuleggja árás á hana heldur væri þetta orðalag sem hún hefði heyrt áður.

Einnig var í dómnum borið undir Andreu Facebook samtal hennar og Óttars Gunnarsson, þann sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir aðild að árásinni:

Andrea: „Kallinn kominn heim. Nú er það full on revenge! Nú er hún að væla í Berki, vill hitta okkur á eftir og leysa þetta í góðu, hahaha, dumb bitch.“

Óttar svarar: „Hún er með aðrar yfirlýsingar hér. Hún er heima.“

Andrea: „Hvað er hún að segja. X ætlar að koma með að hitta hana, væntanlega en hún á ekki að vita af því.“

Óttar: „Ég bjalla í þig á eftir. Hvað ertu annars að gera?“

Andrea: „Nonnsi er í baði og ég er að fara að skutla honum á fund og fer svo inn í fjörð í þetta. Er hún bara ein þarna hjá þér?“

Óttar: „Yes, hvenær á þetta að gerast ?.“

Andrea: „Nonni var að banna mér að hitta hana án hans. Hann vill vera með. Elska þennan kall minn sko. Þannig að eftir fund.“

Þegar Andrea var beðin um að skýra þetta samtal þá sagði hún þetta bara hafa verið eitthvað „töffaratal“ í sér.

Andrea sagðist hafa sagt þetta við Óttar í þeirri von að hann myndi leka þessu í fórnarlambið sem myndi verða til þess að hún yrði hrædd og myndi skila dótinu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.