Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
19:59 › 21. júní 2012
Kínverskur lögreglumaður sýndi lipurð sína þegar hann kom í veg fyrir að karlmaður stykki fram af byggingu.
Breska dagblaðið Telegraph greinir frá því að lögreglan í kínversku borginni Ningbo hefði sinnt útkalli vegna manns sem hótaði að svipta sig lífi. Lögreglan setti af stað áætlun sem fólst í því að einn lögreglumaður reyndi að trufla manninn með því að tala við hann á meðan annar lögreglumaður sveiflaði sér meðfram byggingunni til að grípa manninn sem stóð á syllu á fjórðu hæð.
Á meðan lögreglumaðurinn hélt manninn náðu samstarfsfélagar lögreglumannsins að binda fætur mannsins sem hótaði að stökkva við húsið.

Hemmi Gunn fallinn frá