Ljósmyndarar sitja fyrir Tom Cruise á Íslandi

„Við getum tekið myndir í allt að eins kílómetra fjarlægð“

Erlendir ljósmyndarar sitja fyrir bandaríska leikaranum Tom Cruise sem er við tökur á myndinni Oblivion hér á landi. Greint var frá þessu á vef Ríkisútvarpsins en þar segir að ljósmyndararnir sitjir fyrir stjörnunni og fjölskyldu hans þar sem þau dvelja á Norðurlandi.

Sést hefur til ljósmyndara í Vaðlabyggð þar sem þeir nota aðdráttarlinsur til að ná myndum af leikaranum. „Við getum tekið myndir í allt að eins kílómetra fjarlægð og erum með fín gæði,“ segir ljósmyndarinn Paul Hennessy við Ríkisútvarpið en hluti myndanna birtist á fréttavefnum Splash News.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.