Nú hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir Juan Carlos sem berst fyrir því að fá köttinn sinn aftur frá fyrrverandi maka sínum. Málið komst í fréttirnar í síðustu viku þegar Hæstiréttur vísaði málinu frá en þar á undan hafði Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði því að kötturinn yrði tekinn úr vörslu fyrrverandi maka Juan Carlos og fenginn lögmanni Carlos.
Var sá úrskurður kærður til Hæstaréttar sem vísaði málinu frá en í dómi Hæstaréttar kom frá að áfrýjunarfjárhæðin hafi verið rúmar 700 þúsund krónur en ekki liggi fyrir um verðgildi kattarins og því hafi ekki verið sýnt frá að skilyrði til áfrýjunar hafi verið fullnægt.
Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að Juan Carlos segir köttinn hafa verið skráð eign hans í janúar í fyrra samkvæmt skráningarskírteini. Við samvistarslit í nóvember í fyrra gerðu þeir samkomulag um að kötturinn yrði til heimilis hjá fyrrverandi maka Carlosar og að hann mætti heimsækja köttinn reglulega. Þegar Carlos ætlaði að fara með köttinn á nýtt heimili hafi fyrrverandi maki Carlosar neitað að afhenda honum köttinn og hefur Carlos ekki fengið að sjá hann síðan.
Héraðsdómi Reykjavíkur þótti sýnt að skráning fyrrverandi maka hjá dyraaudkenni.is sé fullnægjandi sönnun fyrir því hver sé eigandi kattarins og að ekki ligg fyrir að Carlos hafi sýnt fram á með skýrum hætti í skilningi laga að hann sé eigandi kattarins.
Dæmdi Hæstréttur Carlos til að greiða fyrrverandi maka sínum 200 þúsund krónur í kærumálskostnað sem hann þarf að greiða og stendur söfnunin yfir á síðunni Help me get my cat back.
Baráttu myndband Carlosar vegna málsins.

Hemmi Gunn fallinn frá