„Mér leið ömurlega að vita af því,“ segir Guðrún Ósk Valþórsdóttir um það þegar hún fékk fregnir af því að einhver óprúttinn aðili hefði tekið myndir af dóttur hennar á samskiptasíðunni Facebook og sagði þær vera myndir af dóttur sinni. Ekki nóg með að hann hefði nánast „eignað“ sér tveggja ára dóttur Guðrúnar Óskar á Facebook heldur segist hann vera kvæntur íslenskri konu en komið hefur í ljós að á Facebook-síðu eiginkonu hans eru notaðar myndir sem fengnar voru af Facebook-síðu annarrar íslenskrar konu sem þessi aðili hefur áreitt stafrænt síðan árið 2010 að sögn Guðrúnar Óskar.
Biður fólk að gæta sín
Guðrún Ósk vill biðja fólk að gæta öryggis á Facebook. „Ég og fjölskylda mín erum með Facebook-síðurnar okkar læstar. Það dugar þó skammt því ef þú merkir vini þína á myndum sem þú birtir á Facebook þá geta vinir þeirra séð myndirnar og þannig geta þær komist í hendur svikara á Facebook ef fólk gáir ekki að sér. Og alls ekki vera með börnin í forsíðumynd á Facebook,“ segir Guðrún Ósk sem hefur haft samband við lögregluna vegna málsins sem taldi þetta alls ekki eðlilegt og þá sérstaklega vegna þess að barn er viðriðið málið.


Hemmi Gunn fallinn frá