Öryggisverðir Tom Cruise ráku bændur af gamla þjóðveginum við Vaðlaheiði á þriðjudagsmorgun. Bændurnir voru að koma af fjöllum en þangað höfðu þeir rekið fé sitt fyrr um morguninn eins og alltaf er gert á þessum tíma árs. „Það er eins og við séum stórkrimmar,“ segir einn viðmælanda DV sem vill ekki láta nafns síns getið.
Einn ábúenda á Halllandi, næsta bæ við Hrafnabjörg, er á meðal þeirra sem lentu í öryggisvörðum á gamla þjóðveginum á Vaðlaheiði. „Við vorum að koma ofan af heiði, eftir að vera búin að vera að smala þarna fyrir ofan,“ segir einn þeirra sem var með í hópnum.
Ítarleg frétt um málið í DV í dag. Þar má meðal annars lesa viðtöl við fleiri íbúa á svæðinu og viðbrögð talsmanns Öryggis- miðstöðvarinnar sem sér um öryggi stjörnunnar.


Hemmi Gunn fallinn frá