Mannbjörg á Skálafelli: „Hann hefði gert það sama fyrir mig“

Eiríkur Guðberg bjargaði félaga sínum sem fór útbyrðis

Eiríkur Guðberg Guðmundsson, háseti á Skálafelli ÁR 50, bjargaði félaga sínum úr sjónum um hálf ellefu leytið í morgun eftir að hann fór útbyrðis með neti. Skipið var á veiðum á Selvogsbanka þegar slysið átti sér stað en annar skipverji flæktist einnig í netinu en Eiríkur náði að ýta honum frá þannig að hann færi ekki einnig útbyrðis.

Eiríkur segist hafa ákveðið að bíða með að stökkva á eftir félaga sínum sem fór útbyrðis því hann náði að halda sér í stertinn og beið Eiríkur eftir því að hann kæmi sér nær skipinu.

„Á meðan því stóð kom ég mér í gallann og stökk út á eftir honum og kom honum í Markúsarnet og aftur upp í skip,“ segir Eiríkur sem gerir lítið úr sínum hlut. „Hann hefði gert það sama fyrir mig. Þetta er bara að stökkva í sjóinn,“ segir Eiríkur Guðberg.

Sigurður Viggó Gunnarsson, skipstjóri á Skálafelli, segir manninn sem fór útbyrðis hafa bjargast giftusamlega. „Það hjálpuðust allir að. Það var snarræði að einn var afburðafljótur að fara í flotgalla til að koma honum aftur um borð,“ segir Sigurður Viggó sem segir hásetan sem fór útbyrðis vera við ágætis heilsu í dag. „Það er mesta furða hvað þetta slapp vel,“ segir Sigurður Viggó.

„Þetta gerðist mjög fljótt. Það er sett strax í gang áætlun sem menn hafa æft í slysavarnaskólanum. Á augnabliki fer strax í gang áætlun til að koma honum aftur um borð. Hún gekk mjög vel, það tók ekki nema tvær þrjár mínútur að koma honum aftur um borð,“ segir Sigurður Viggó.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.