Réttindi einstaklinga sögð virt að vettugi

Lögmaður ósáttur við aðgengi skattayfirvalda

„Er það virkilega svo að fólki finnist almennt í lagi að skattayfirvöld fái ótakmarkaðar upplýsingar hjá lögmönnum um viðkvæm einkamálefni fólks við rannsókn á því hvort læknir úti í bæ hafi skotið einhverjum krónum undan skatti?“

Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélagsins, óttast orðið um friðhelgi einkalífsins í kjölfar staðfestingar Hæstaréttar Íslands á þeim dómi Héraðsdóms að lögmanni sé skylt að afhenda skattrannsóknarstjóra yfirlit yfir nöfn og kennitölur allra þeirra kvenna sem áttu viðskipti við Jens Kjartansson, lýtalækni. Leikur grunur á að Jens hafi stundað skattsvik en Jens komst í fréttirnar fyrr á árinu eftir að í ljós kom að hann hafði grætt gallaða PIP brjóstapúða í fjölda kvenna hérlendis.

Lögmaðurinn segir í grein sem hann birtir í Morgunblaðinu að niðurstaðan sé hreint og beint skelfileg og eðlilegt sé nú að spyrja hvort stjórnarskrárvernd einkalífsins gagnvart ríkisvaldinu sé að engu orðin.

„Hvað er þá því til fyrirstöðu að skattayfirvöld fái aðgang að gögnum í vörslu skipaðra verjenda sakaðra manna? Samkvæmt dómi Hæstaréttar er ekkert því til fyrirstöðu. Það er eins og allir séu sofandi á verðinum yfir þessum mikilvægu einstaklingsréttindum.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.