Páfinn hvetur hina ríkari til að styrkja þá fátækari

Vill ekki að kaþólskir prestar fái að kvænast

Benedikt páfi sextándi var staddur á samkomu í Mílanóborg á Ítalíu í dag þar sem 350 þúsund gestir hlýddu á orð hans en hann er þar í opinberri heimsókn. Í ræðu sinni hvatti páfinn fjölskyldur í ríkari löndum heims til að styrkja fjölskyldur í þeim fátækari.

Páfastóllinn hefur átt undir högg að sækja eftir hið svokallaða Vatileaks-mál en eftir að málið komst í hámæli var einkaþjónn páfa handtekinn, grunaður um að hafa lekið viðkvæmum upplýsingum frá Vatíkaninu í fjölmiðla.

Benedikt ræddi einnig við presta dómkirkjunnar í Mílanó. Háværar kröfur eru uppi um að kaþólskir prestar fái að kvænast vegna gríðarlegs fjölda tilfella um barnamisnotkun innan kaþólsku kirkjunnar. Páfinn tók það hins vegar ekki í mál og sagði að skírlífið væri hluti þess ljóma sem væri yfir prestskap kirkjunnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.