„Svo hissa á því að einhver vildi ríða grátandi stelpu“

Erla Hlynsdóttir segir frá reynslu sinni af nauðgunartilraun

„Ég var um tvítugt þegar ég húkkaði mér far eftir djammið. Þeir voru tveir sem stoppuðu, afskaplega indælir. Annar keyrði og hinn sat aftur í hjá mér. Þegar hann reyndi að nauðga mér fór ég að gráta. Hann stoppaði samt ekki og ég man hvað ég var hissa. Ég var svo hissa á því að einhver vildi ríða grátandi stelpu,“ skrifar fréttamaðurinn Erla Hlynsdóttir í Fréttablaðið í dag.

Erla skrifar þar á áhrifamikinn hátt um sína eigin upplifun af nauðgunartilraun og lýsir því hvernig hún barðist við árásarmann sinn og endaði á því að reyna henda sér út úr bifreiðinni á alltof mikilli ferð.

„Ég kýldi hann og sparkaði, ég opnaði hurðina á bílnum á meðan við vorum á ferð og ég reyndi að henda mér út úr bílnum á allt of mikilli ferð. Það endaði með því að bílstjórinn stoppaði og ég hljóp út. Honum hefur væntanlega verið annt um bílhurðina. Aldrei sagði ég mínum nánustu frá þessu,“ skrifar Erla.

Erla segir einnig frá vinkonu sinni sem hefur verið nauðgað þrisvar. Konan er lesbía og greinir Erla frá því að einn þeirra sem réðust á konuna hennar hafi viljað reyna að sanna fyrir henni að „ef hún fengi alvöru karlmann inn í sig þá myndi hún skipta um skoðun.“ Maðurinn var æskuvinur konunnar. „Þegar hún vaknaði með hann inni í sér fannst henni sem heimur hennar hefði hrunið. Hún hætti að tala við „vin“ sinn. En hún vissi að hann var góður gaur og lagði ekki fram kæru. Hún vissi að hann meinti þetta ekki,“ skrifar Erla og segir einnig dæmi af hópnauðgun af útihátíð.

Að lokum spyr Erla: „Þetta eru bara svona örfá dæmi. Hvað þekkir þú marga sem hefur verið nauðgað?“

Hægt er að lesa grein Erlu í heild sinni hér á Vísir.is


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.