Það vottaði ekki fyrir eftirsjá hjá manninum sem afhöfðaði dóttur sína vegna þess að hann taldi hana vera lausláta. Maðurinn, Oghad Singh, gekk inn á lögreglustöð í norðvestur Indlandi fyrir tveimur dögum með höfuð dóttur sinnar í einni hendi og blóðugt sverð í annarri.
Lögreglan segir Singh hafa sakað dóttur sína um að vera fjölskyldunni til skammar og gert tveimur systrum hennar nánast ómögulegt að finna eiginmenn.
Íbúar í þorpinu Dengari gagnrýndu Singh harðlega en hann gekk með höfuð dóttur sinnar í gegnum þorpið og lýsti því hvað hann hafði gert og hvers vegna.
Lögreglan hefur kært Singh fyrir morð en hann segist hafa fengið nóg af dóttur sinni sem fór frá eiginmanni sínum sem foreldrar hennar höfðu valið.
Hún fluttist aftur heim til foreldra sinna og hafði verið í sambandi með nokkrum mönnum áður en hún stakk af með einum þeirra fyrir tveimur vikum. Faðir hennar, Singh, neyddi hana til að koma aftur heim og myrti hana síðastliðinn sunnudag, að því er fram kemur á vef breska dagblaðsins The Daily Mail.

Hemmi Gunn fallinn frá