Adele vakti stúlku úr dái

Læknar furðulostnir

Þrettánda apríl féll hin breska Charlotte Neve í dá eftir að hafa hlotið blæðingu inn á heilann. Læknar greindu móður hennar Leila, 31 árs, frá því að ekki væru miklar líkur á því að dóttir hennar myndi vakna aftur.

Eftir að hafa verið í viku í dái þá heyrðist lagið Rolling in the Deep með söngkonunni bresku Adele, í útvarpinu á sjúkrahúsinu og Leila ákvað að syngja með því, því hún mundi að það var í uppáhaldi hjá dóttur hennar.

Læknarnir urðu furðulostnir þegar þeir sáu Charlotte brosa þegar hún heyrði móður sína syngja lagið.

Nokkrum dögum síðar var Charlotte byrjuð að tala og hún gat meira að segja staðið upp úr rúminu. Það er breska dagblaðið The Telegraph sem greindi frá þessu en þar kemur fram að Charlotte sé á batavegi heimafyrir þar sem hún lærir að ganga og tala á ný.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.