Spyr hvaða upplýsingar O´Reilly fékk í bjórþokunni á Enska barnum

Egill Helga hjólar í bandarískan kollega sem sagði metnaðargjarna Íslendinga flýja land

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason gagnrýnir bandaríska kollega sinn Bill O´Reilly vegna ummæla sem sá síðarnefndi hafði í grein sem birtist á vef bandaríska dagblaðsins Columbia Daily Tribune . Þar sagði O´Reilly metnaðargjarna Íslendinga flytja af landi brott til þess að þéna meira og menntað fólk sé þar í meirihluta.

Segir Egill O´Reilly hafa þá lífsskoðun að lífið sé barátta þar sem þeir sem minna mega sín megi éta skít og segir Egill þá skoðun O´Reillys um Íslendinga og metnaðinn vera byggða á furðulegri ranghugmynd.

„O´Reilly er reyndar kreddumaður og hann sér það sem hann vill sjá, það sem staðfestir fyrirfram mótaðar skoðanir hans. Mér er líka tjáð að hann hafi aðallega haldið sig á stað sem nefnist Enski barinn í miðbæ Reykjavíkur, það er spurning hvaða upplýsingar maður fær þar í bjórþokunni,“ skrifar Egill á bloggsíðu sína og telur þar upp ágæti íslensku þjóðarinnar og segir vera leitun eftir þrjú hundruð þúsund manna hópi sem býr yfir jafn miklum metnaði og Íslendingar.

„Við streitumst við að halda úti velferðarkerfi, heilbrigðisþjónustu sem er með því besta sem þekkist í heiminum, vegakerfi sem nær hringinn í kringum landið, við gröfum göng, við höldum úti sinfóníuhljómsveit, óperu, listasöfnum, tónlistarmenntun, mörgum háskólum, við gefum út mörg blöð, erum framarlega í notkun internetsins, höfum fjölda sjónvarpsstöðva, við gefum út mörg hundruð bækur á ári á okkar eigin örtungumáli. Teljum samt að bækurnar okkar geti keppt á hvaða vettvangi sem er. Sumir myndu jafnvel segja að við streitumst við að gera of mikið sjálf miðað við stærð þjóðarinnar.

Þetta er ekki allt jafn gott eða fullkomið, en það er forvitnilegt að bera þetta saman við til að mynda Lúxemborg, svo við tökum dæmi frá Evrópu. Þar eru ívið fleiri íbúar en á Íslandi, þeir eru vel efnum búnir, en þar er eiginlega ekki neitt – einn háskóli sem var stofnaður 2003 og varla neinar menningarstofnanir,“ skrifar Egill á bloggsíðu sína.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.