„Forvitni á ekki heima í svona óheppni,“ segir kynnir á Bíladögum á Akureyri rétt eftir að slys varð þar á föstudag. Bíladagar eru nú haldnir á Akureyri og eru fjölmargir sem hafa lagt leið sína þangað.
Á föstudagskvöld, varð þar slys þegar keppandi í svokallaðri drift keppni missti stjórn á bílnum og lenti hann á áhorfendum. Betur fór en á horfðist, en þurftu tveir að leita á slysadeild eftir slysið. Meiðsl þeirra munu þó ekki hafa verið alvarleg.
Í myndbandinu hér fyrir ofan má sjá aðdraganda slyssins og hvernig bílinn fer inn í áhorfendaþvöguna.
Kynnirinn á drift-keppninni biður áhorfendur um flykkjast ekki að slysstaðnum og óskar eftir því að fólk með myndavélar taki ekki upp. „Ég vil biðja myndavélamenn að hafa sig frá. Þeir eru ekki að fara að taka myndir. Takk fyrir. Ég ætla líka að biðja áhorfendur um að færa sig frá svo að menn geti sinnt fólki ef einher hefur slasast,“ segir kynnirinn eins og heyra má í meðfylgjandi myndbandi.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013