Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
08:34 › 17. júní 2012
Lögreglan á Akureyri greinir frá því að þrír menn hafi ruðst inn á heimili þar í bæ og gengið í skrokk á húsráðenda. Segir í tilkynningunni að málið tengist deilum milli húsráðanda og árásarmanna. Húsráðandi slapp með minniháttar meiðsl að sögn lögreglu.
Þá voru fimm fluttir á slysadeild af lögreglu eftir að hafa lent í slagsmálum í miðbænum. Einn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild eftir líkamsárás. Einnig barst tilkynning um nokkur hópslagsmál í miðbænum eftir að skemmtistaðir bæjarins lokuðu en mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan staðina eftir lokun.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013