Rodney King látinn

Líkið fannst á botni sundlaugar

Bandaríkjamaðurinn Rodney King er látinn 47 ára aða aldri. Unnusta hans Cynthia Kelley fann lík hans á botni sundlaugar í Rialto, í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Á vef breska dagblaðsins The Daily Mail er greint frá því að unnusta hans hefði tjáð vinum sínum að King hefði drukkið áfengi og reykt kannabisefni áður en hann lét lífið.

Það var árið 1991 sem fjórir lögreglumenn gengu í skrokk á King í Los Angeles. Atvikið náðist á myndband og brutust út miklar óeirðir í borginni eftir að sjónvarpsstöðvar sýndu það.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.