„Náð mun lengra en mig dreymdi um“

Jóhanna vongóð um stjórnarskrárbreytingarnar

Jóhanna Sigurðardóttir sagði í hátíðarræðu sinni þann 17. júní að jákvæðar breytingar hefðu átt sér stað á Íslandi eftir hrunið. „Á fáum árum hefur á Íslandi verið lagður grunnur að nýju og betra samfélagi, þar sem ríkir mun meiri fjárhagslegur jöfnuður, meira félagslegt réttlæti og leikreglurnar eru heilbrigðari en fyrir hrun,“ sagði hún og benti á að böndum hefði verið komið á hallarekstur ríkissjóðs, atvinnulausum hefði fækkað, skuldir heimila lækkað og kaupmáttur launa vaxið jafnt og þétt. „Þegar litið er til aukins jöfnuðar höfum við satt að segja náð mun lengra en mig dreymdi um þegar ég stóð hér fyrir þremur árum.“

Jóhanna benti á að efnahagsbatinn væri talsvert meiri hér en í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við og sagði leiðtoga annarra ríkja fylgjast með þessum breytingum af áhuga. Jóhanna brýndi fyrir þingmönnum að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að endurvinna traust þjóðarinnar. Jafnframt sagði Jóhanna mikilvægt að frumvarp um veiðigjald yrði samþykkt á Alþingi og gerði tillögurnar að nýrri stjórnarskrá að umtalsefni. Hún telur að ef allt gangi að óskum geti ný stjórnarskrá tekið gildi þegar á næsta ári, jafnvel á þjóðhátíðardaginn 17. júní árið 2013.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.