Hæ hó og jibbí jei: Hvað ætlar þú að gera í dag?

Búist við rigningu fram eftir degi

Búist er við fjölmenni í sveitarfélögum víðsvegar um landið í tilefni dagsins og má nálgast dagskrá 17.júní hátíðarhalda nokkurra bæjarfélaga hér fyrir neðan. Fjölbreytt dagskrá er og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Fólk ætti að klæða sig eftir veðri, en Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur DV spáir rigningu í höfuðborginni en úrkomu minna eftir hádegi.

„Í dag, þjóðhátíðardag 17. júní, eru spár að gera ráð fyrir rigningu eða skúrum á suðvestan- og vestanverðu landinu, einkum framan af degi en úrkomuminna eftir hádegi. Úrkomulítið veður norðan og austanlands og víða léttir til þegar líður á daginn,“ segir hann. Þá segir hann að það verði yfirleitt hæg norðaustlæg eða austlæg átt. Rigning og síðar skúrir suðvestan- og vestanlands, annars úrkomulítið og léttir víða til þegar líður á daginn, einkum norðan til. Hiti 7-13 stig, hlýjast vestan og norðvestan til.

Dagskrá sautjánda júní víða um land:

Dagskrá 17. júní í Hafnarfirði

Dagskrá 17. júní í Reykjavík

Dagskrá 17. júní í Kópavogi

Dagskrá 17. júní á Akureyri

Dagskrá 17.júní á Ísafirði

Dagskrá 17.júní á Egilsstöðum

Dagskrá 17. júní í Árborg

Dagskrá 17. Júní á Álftanesi

Dagskrá 17.júní á Akranesi

Dagskrá 17.júní í Stykkishólmi

Dagskrá 17.júní í Snæfellsbæ

Dagskrá 17.júní í Reykjanesbæ

Dagskrá 17. júní í Vestmannaeyjum


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.