Í samtali við DV segist María Lilja Þrastardóttir velta því fyrir sér hvort Guðbergur Bergsson rithöfundur sé orðinn elliær. Tilefni þessara vangaveltna er pistill eftir Guðberg sem birtur var á Eyjunni í dag, en þar sakar hann stúlkuna sem kærði Egil „Gilzenegger“ Einarsson fyrir nauðgun, um „stelpupussulæti“ og kallar femínisma meyjarhaftavörn.
María Lilja, sem vakið hefur athygli fyrir pistla sína um kvenréttindi, segir að grein Guðbergs dæmi sig sjálf. „Það verður líka áhugavert að sjá hverjir það verða sem verða Guðbergi sammála,“ bætir hún við.
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, sem gert hefur garðinn frægan með myndalbúminu „Karlar sem hata konur“ tekur í sama streng og skrifar í stöðuuppfærslu á Facebook: „Mikið ofboðslega er Guðbergur Bergsson smá og aum og ömurleg manneskja.“
Grein Guðbergs hefur vakið talsverða hneykslan en í henni er meðal annars að finna þessi orð: „Svo henti það, sem alltaf gerist, að glæsimennið er ásakað fyrir að hafa farið í óleyfi upp á stelpu og hún heimtar hjónaband eða pening. Áður var hlegið í þorpum að þannig stelpupussulátum en nú er öldin önnur á íslenska menningarlandinu. Þar er komin í spilið viss nunnuvæðing í nútímastíl og meyjarhaftavörn sem kallast femínismi.“

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi