Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
12:29 › 17. júní 2012
Sprengja, sem komið hafði verið fyrir undir bíl í Kópavogi í nótt, sprakk með þeim afleiðingum að bíllinn stórskemmdist og rúða brotnaði í nærliggjandi húsi. MBl.is greinir frá en þar kemur einnig fram að sprengjan hafi verið það öflug að hávaðinn frá henni heyrðist víða.
Mikið lið lögreglumanna kom á vettvang og auk þess voru sprengisérfræðingar frá Landhelgisgæslunni kallaðir til og er málið í rannsókn. Ekki liggur fyrir hvernig sprengju var um að ræða. Ekki fengust upplýsingar hjá lögreglunni um málið þegar DV leitaði eftir því

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum