Sjónvarpsmaðurinn Bill O‘Reilly skrifar um Ísland í pistli á vefsíðunni Columbia Triabune.
DV greindi frá því á dögunum að hann hefði verið hér á landi en hann greinir frá ferðalagi sínu í pistlinum. „Barack Obama myndi kunna að meta Ísland,“ segir O‘Reilly en hann segir að með því að horfa til Íslands geti menn jafnvel skilið betur hugmyndafræði Barack Obama. O‘Reilly er stjórnandi þáttarins „The O‘Reilly Factor“ á sjónvarpsstöðinni Fox. Hann og Barack Obama hafa oft eldað grátt silfur, en í greininni segir O‘Reilly að frítt heilbrigðiskerfi og háir skattar séu við líði. Hann segir að ástæðan fyrir komu hans hingað til lands hafi verið til að skilja betur sýn Obama, sem gengur þvert á hans eigin skoðanir.
O‘Reilly segir að þrátt fyrir efnahagshrun hér á landi hafi hann séð fá merki þess í heimsókn sinni. Hann segir að Íslendingar hafi aðhafst lítið varðandi viðbragðsáætlun nema að halda velferðarkerfi gangandi. „Ég varð ekki var við mikla fátækt eða tortryggilegan auð,“ segir hann. „Flestir búa í litlum húsum, þeir aka ekki um á dýrum bílum, þau klæða sig snyrtilega og tala ensku, (sem er skyldufag í skólum).“
Þá segir hann að Íslendingar hafi tekist að jafna bilið milli ríkra og fátækra þannig að flestir hafi það eins. „Þeir metnaðargjörnu fara, hinir virðast sáttir við að búa við öryggisnet, anda að sér hreinu loftinu og njóta afslappaðrar menningar,“ segir hann.
„Obama vill kreista í burtu óþarfa í Ameríku og að vissu leiti getur Ísland sýnt honum hvernig hægt sé að gera það. En fyrir mig er lífsbaráttan keppni og snýst um að nýta hæfileika þína til fullnustu,“ segir hann.
Hér má lesa hugleiðingar hans Bill O‘Reilly um Ísland. < /a>

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013