Hélt framhjá í eigin brúðkaupi

Segir þetta hafa verið áfenginu að kenna

Það entist ekki lengi hjónasælan hjá austurrískum nýgiftum hjónum. Brúðguminn var nefnilega gómaður í sjálfri brúðkaupsveislunni við að gera sér dælt við unga þjónustustúlku. Raunar voru þau gripin glóðvolg í hvílubrögðum.

Það var nýi tengdafaðir hans sem kom parinu. Fauk svo í hann að hann rak alla gestina heim með miklum látum og sagði svo dóttur sinni frá málavöxtum.

Að sögn brúðgumans var þó Bakkus að verki. Segist hann hafa drukkið svo mikið að dómgreind hans bar skaða og þjónustustúlkan varð óstjórnlega freistandi.

Brúðurin situr eftir með sárt ennið, en þar sem hjúskaparvottorðið var undirritað og allt löglegt þarf hún að bíða næstu sex mánuðina eftir skilnaði samkvæmt lögum og reglum um hjónaband í Austurríki.

Huffington Post greinir frá


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.