Bandarískur karlmaður er ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að fjögurra mánaða gömul dóttir hans lést eftir að hafa drukkið vodka úr pela.
Stúlkan lét lífið í júní í fyrra eftir að hún drakk áfengið. Ári seinna hefur faðir hennar, Keith Antonine Furlow, frá Stone Mountain í Bandaríkjunum, verið ákærður fyrir að manndráp af gáleysi.
„Við erum að vonast eftir réttlæti fyrir hönd stúlkunnar,“ sagði saksóknarinn Robert James við fjölmiðla vestanhafs.
Ákæruvaldið telur að barnið hefði aldrei geta komist í áfengið. Er talið víst að faðir stúlkunnar, Furlow, hafi sett vokda í pelann hennar.
„Það er augljóst að barn á þessum aldri er ekki fært um að halda á pelanum eitt og drekka. Fjögurra mánaða gömul börn eru mötuð,“ sagði saksóknarinn.
Hinn tvítugi Furlow neitar sök.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013