Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
22:10 › 16. júní 2012
Að minnsta kosti einn lét lífið þegar svið hrundi á tónleikastað í Toronto skömmu áður en breska sveitin Radiohead átti að stíga á svið, að því er fram kemur í fjölmiðlum í Kanada.
Þrír slösuðust og af þeim einn lífshættulega þegar sviðið við Downsview Park hrundi.
Atvikið átti sér stað klukkutíma áður en hleypa átti áhorfendum inn á tónleikasvæðið.
Liðsmenn Radiohead létu hafa eftir sér á samskiptasíðunni Twitter að tónleikunum hefði verið frestað vegna ófyrirséðra aðstæðna.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum