Nokkuð hátt hlutfall varaþingmanna situr nú á Alþingi. Fimm varaþingmenn tóku sæti í síðustu viku en auk þerra tók Ólafur Þór Gunnarsson sæti fyrir hönd Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur á þingi í byrjun júní. Þá hefur Magnús M. Nordahl setið á Alþingi fyrir hönd Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra frá lok janúar. Katrín er í barneignarfríi og verður að öllum líkindum fram í ágúst.
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir tók sæti sem varamaður Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingkonu VG, á miðvikudag vegna veikinda Lilju Rafneyjar. Guðrún H. Valdimarsdóttir tók sæti sem varamaður Vigdísar Hauksdóttur, þingkonu Framsóknarflokksins, en Vigdís Hauksdóttir er komin í launalaust leyfi frá þingstörfum og er í Tyrklandi í sumarleyfi. Guðrún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi.
Þau Baldvin Jónsson og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir tóku sæti sem varamenn Birgittu Jónsdóttur, þingkonu Hreyfingarinnar, og Ásbjörns Óttarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, síðastliðinn mánudag. Samkvæmt skýringu Birgittu til Alþingis er hún erlendis í opinberum erindagjörðum. Ásbjörn gefur þá skýringu að hann sé fjarverandi af persónulegum ástæðum.
Til þess að alþingismaður eigi rétt á að taka inn varamann vegna fjarvista í opinberum erindum erlendis en halda þingfararkaupi og öðrum greiðslum þurfa forföll aðalmanns að vara í minnst fimm þingfundadaga á tveimur vikum. Þingmenn geta í einstaka tilvikum kallað inn varamenn í styttri tíma og missa þá þingfararkaup sitt fyrir þá daga.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013