Kaupmenn flýja Laugaveginn

„Það er viðskiptaflótti héðan"

„Það er viðskiptaflótti héðan af Laugaveginum og sífellt fleiri að fara,“ segir Hildur Símonardóttir, eigandi Vinnufatabúðarinnar á Laugavegi, og meðlimur í stjórn nýstofnaðra Samtaka kaupmanna og fasteignaeiganda við Laugaveg. Hún segir æ fleiri búðir og fyrirtæki vera á förum frá Laugaveginum.

Herrafataversluninni Dressmann verður lokað á Laugaveginum í ágúst og í haust munu einnig Landsbankinn og Valitor flytja þaðan. Hildur ásamt fyrrgreindum samtökum kenna borgaryfirvöldum um, þau vinni að því að hefta aðgang fólks að verslunum sem muni leiða til þess að verslun deyr út við Laugaveginn líkt og gerðist við lokun bílaumferðar í Austurstræti.

„Það eru sífellt fleiri að fara héðan og ekki er verið að gera fólki auðveldara fyrir að vera hérna,“ segir Hildur og vísar til þess að hluta Laugavegarins er lokað fyrir umferð bíla yfir sumartímann. „Þetta er í raun mannréttindabrot,“ segir hún.

Meira um máli í helgarblaði DV og fyrir áskrifendur DV á netinu

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.