Fáklædd stúlka í heitum potti býður vegfarendum gos

„Ég vona að minnsta kosti að þessu stelpa fái vel borgað fyrir þetta,“ segir Hildur Lilliendahl

Vegfarendum í Austurstræti brá í brún þegar þeir gengu fram á fáklædda unga stúlku sitjandi í uppblásinni laug fyrir nú fyrir stundu.

Í ljós kom að uppákoman er hluti af markaðsátaki Ölgerðarinnar og 10-11 verslananna.

Útvarpsstöðin FM 957 er með beina útsendingu frá staðnum og ætla að gefa tvo Lay-Z-Spa potta en undanfarið hefur verið í gangi leikur á útvarpsstöðinni þar sem hægt er að vinna slíkan pott með að senda af sér mynd á facebook-síðu stöðvarinnar, haldandi á Lays snakki.

„Lays er að gefa slíka potta í sínum sumarleik sem er að klárast í dag. Það var pælingin að hafa þarna stúlku og strák í pottinum og síðan einhvern tímann í dag segir Heiðar Austmann í útvarpinu að sá sem verður fyrstur til að skella sér í pottinn í Austurstrætinu megi eiga hann,“ segir Mikael Jónasson vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni

Aðspurður hvort það hafi verið nauðsynlegt að hafa unga stúlku í baðfötum ofan í pottinum segir hann: „Það er örugglega betra fyrir stúlkuna og strákinn að vera í sundfötum en í fullum klæðum.“

„Mér finnst þetta alveg yfirgengilega hallærislegt,“ segir Hildur Lilliendahl, feministi og segist vera hálf orðlaus yfir þessu upptæki. „Ég er eiginlega orðlaus yfir þessu uppátæki og finnst þetta niðurlægjandi fyrir alla aðila sem að þessu koma. Ég vona að minnsta kosti að þessu stelpa fái vel borgað fyrir þetta.“

Í samtali við DV.is segir Erla Jóna Einarsdóttir aðstoðarmaður forstjóra Ölgerðarinnar, að Ölgerðinni þyki leitt ef uppátækið hefur sært blygðunarkennd vegfarenda. Fyrirtækinu hafði aðeins borist ein kvörtun vegna kynningarinnar.

Erla Jóna vill einnig koma því á framfæri að einnig sé drengur í sundfötum í pottinum, en hann hafi tafist og því hafi stúlkan verið ein á meðan ljósmyndara DV bar að garði.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.