Leynd yfir veikindaleyfi þingmanns

Lilja Rafney tekur sér frí

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna er í veikindaleyfi frá störfum þingsins og hefur verið kallaður inn varamaður fyrir hennar hönd. Á vefnum AMX er skrifað um það að sumarfrí Lilju hafi skarast á við þingstörf og því hafi verið kallaður til varamaður fyrir Lilju.

„Smáfuglunum var bent á að Lilja Rafney sé komin í veikindaleyfi frá þingstörfum og að varaþingmaður hafi verið kallaður inn í hennar stað. Þær fréttir eru ekki í samræmi við heimildir smáfuglanna um að Lilja Rafney væri á leið til Kanaríeyja í sumarfrí. Hins vegar hafi tafir á þinglokum valdið því að þingstörfin skarast á við sumarfríið. Því hafi verið kallaður til varamaður. Getur þetta staðist? Er Lilja Rafney á leið í veikindafrí með þeim fríðindum sem því fylgja en er í raun að fara í sumarfrí á sólarströnd?“ skrifa smáfuglarnir.

Í samtali við DV.is kvaðst Lilja Rafney vera í veikindaleyfi og að í veikindavottorði hennar kæmi fram hver veikindi hennar væru.

Hún vildi ekki tjá sig nánar um málið en á henni mátti skilja að hún væri erlendis þó hún gæfi ekki upp hvar það væri.

Varaþingmaður hefur einnig verið kallaður inn fyrir Vigdísi Hauksdóttur sem er um þessar mundir í sumarfríi í Tyrklandi.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.