Búið að einkavæða eftirlit með föngum

Íslenskir fangar geta fengið að afplána undir rafrænu eftirliti

Nokkur fjöldi fanga er farinn að afplána dóma sína í rafrænu eftirliti. Slík afplánun hófst í fyrsta skipti í apríl. Enginn fangi getur afplánað meira en 240 daga með rafrænu eftirliti og enginn fangi sem dæmdur hefur til skemmri refsingar en 12 mánuði óskilorðsbundið. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir rafræna eftirlitið hafi reynst vel en að það sé ennþá í prófun. Öryggismiðstöðin sér um rafræna eftirlitsbúnaðinn og er því í raun búið að einkavæða hluta af eftirlitskerfi fangelsismála á Íslandi.

Nýtt þrep í afplánun

Rafrænt eftirlit er ný lausn innan fangelsismálakerfisins hér á landi og bætist við þau úrræði sem þegar eru í boði fyrir fangelsismálayfirvöld að beita í málefnum fanga. Ekki er um að ræða einhvers konar viðbót við þær lausnir sem þegar eru í boði, eins og varðandi opin fangelsi, vernd og reynslulausn fanga. Það kemur þó vel til greina að skoða hvort nýta eigi rafrænt eftirlit á öðrum stigum afplánunar. „Já, ef við teljum ástæðu til þess þá kemur það alveg til álita,“ segir Páll.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.