Þingmenn samþykktu rétt í þessu að vísa heimild til fjármögnunar á jarðganga undir Vaðlaheiði í þriðju umræðu þingsins.
Þrátt fyrir að ríkið komi að fjármögnun á gerð gangnanna er gert ráð fyrir að greitt verði fyrir framkvæmdirnar með veggjöldum. Framkvæmdin hefur verið gagnrýnd á þinginu og verið sögð einkaframkvæmda að nafninu einu.
Markmið frumvarpsins sem þingmenn veittu í dag brautargengi til næstu umræðu er að veita fjármálaráðherra heimild til að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. fyrir allt að 8.7 milljarða á verðlagi ársloka 2011. Félagið er að 51 prósent hluta í eigu ríkisins og fer Vegagerðin með hlut ríkissjóðs og skipar formann stjórnar félagsins. Frumvarpinu var vísað til vinnslu fjárlaganefndar áður en lokaumræða þingsins verður tekin fyrir.
Minnihluti félagsins er í eigu Greiðrar leiðar ehf. en hluthafar eru Akureyrarbær, KEA svf., Þingeyjarsveit og tólf önnur sveitarfélög og sjö lögaðilar. Markmið félagsins er að innheimta veggjalda standi undir fjárfestingunni að fullu. Samkvæmt frumvarpinu mun ríkissjóður fjármagna framkvæmdalánið með sölu markaðsskuldabréfa. Gert er ráð fyrir að endurfjármagna lánið árið 2018 á almennum lánamarkaði.fjármagnað með skammtímalánum á framkvæmdatíma,“ segir í greinagerð frumvarpsins um heimild til fjárframlaga ríkisins.
Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem leggst gegn framkvæmdinni sagði við atkvæðagreiðsluna að þessi samþykkt bæri merki grísks bókhalds. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði menn hafa farið út af sporinu í málinu. Hann sagði mikilvægt að standa að baki aga og við prinsipp við ákvarðanatöku á þinginu. Hann væri ekki tilbúinn að sveigja frá slíkum reglum við þessa útfærslu á framkvæmdinni. „Ég studdi hugmyndir um að flýta framkvæmdum með vegagjöldum og tek undir með þeim sem hér tala um þá miklu framkvæmdabót sem framkvæmdinni fylgir. Hins vegar tel ég að á þessu stigi málsins hafi menn farið út af sporinu og klúðrað tækifæri til að láta framkvæmdina eiga sér stað á þeim forsendum sem upphaflega var lagt upp með,“ sagði Bjarni.
„Þessi jarðgangna gerð er kannski ekki brýnasta samgöngubót dagsins í dag en hún er afar þörf og hún verður fjármögnuð með veggjöldum,“ sagði Jónína Rós Guðmundsdóttir þingkona Samfylkingar sem styður framkvæmdina. Hún sagði Vaðlaheiðagöng uppfylla skilyrði um bætt umferðaröryggi, styttingu vegalengda, stækkun atvinnu- og þjónustusvæði, efnahagslega hagkvæmni. Þá sagði hún göngin bæta samstöðu á svæðinu.
Það kemur fram í greinargerð frumvarpsins sem heimilar fjárútlátin að heildarstofnkostnaður við göngin sé ætlaður um 11 milljarða króna með virðisaukaskatti. Gert er ráð fyrir að áðurnefnd 8,7 milljarða króna lántaka miðist við heildarkostnað án virðisaukaskatts þar sem fyrirtækið miðar við að innskattur fáist endurgreiddur á framkvæmdatímanum.
Það er mat fyrirtækisins Vaðlaheiðagöng ehf. að um 210 ársverk verða til á framkvæmdatímanum auk þess sem áætlað er að allt að 30 afleidd ársverk bætist við vegna framkvæmdarinnar.
Þá kemur fram að áætlaðar tekjur ríkissjóðs af framkvæmdinni meðal annars af tekjuskatti og tryggingagjaldi á framkvæmdatímanum, geti numið um 520 milljónum króna. Auk þess eru útsvarstekjur sveitarfélaga áætlaðar um 370 milljónir vegna framkvæmdanna. Þegar rekstur ganganna hefst munu tekjur ríkissjóðs felast í virðisaukaskatti af veggjöldum, tekjuskatti af launum starfsmanna og hugsanlegum tekjuskatti Vaðlaheiðarganga hf. Þá mun ríkissjóður spara umtalsverða fjármuni vegna minni snjómoksturs á leiðinni um Víkurskarð.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi