„Unglingar komu blóðugir heim“

Þrjú staðfest dæmi um blóðugar hýðingar á ungum drengjum í íþróttum

„Ég hef að minnsta kosti þrjú dæmi um það að unglingar undir lögaldri hafi komið blóðugir heim eftir svokallaðar busanir hjá íþróttafélögunum og hafi hvorki getað setið né legið í nokkra daga á eftir.“ Þetta segir Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður og fyrrum stjórnlagaráðsfulltrúi á blogginu sínu í kvöld. Þá segist hann telja að slíkt ofbeldi innan íþróttahreyfinganna sé mun algengara en flesta grunar þar sem hann hafi fengið sínar upplýsingar „úr ólíkum áttum“.

Ómar hefur sagt að hann vilji að íþróttahreyfingin á Íslandi láti rannsaka rassskellingar eða svokallaða busun á meðal iðkenda sinna. Lengi hafi verið til siðs hjá íslenska handboltalandsliðinu að rassskella nýliða eftir leik en nú hafi sú hefð „breiðst út eins og faraldur sem eitthvað voðalega fínt til yngri flokkanna í boltaíþróttunum.“ Dæmi séu um að unglingar hafi verið svo illa farnir eftir þessa meðferð að þeir hafi hvorki getað setið né legið í marga daga á eftir.

Í nýju bloggi segist Ómar óttast að þetta sé einungis toppurinn á ísjakanum. „Þetta verður að rannsaka af festu og alvöru, þótt reynsla mín af fregnum af þessu sýni, að afar sterk þöggun hafi verið og sé í gangi í málinu.“ Þá segir hann fórnarlömbin bera harm sinn í hljóði af ótta við einelti eða að koma slæmum stimpli á félagið sitt. „Þess vegna hafa allir þeir sem hafa greint mér frá þessu gert það að skilyrði að ég héldi algerri nafnleynd.“

Hann segir að ef ástandið haldi áfram að vera eins og það er sé hætt við því að ekkert komi út úr rannsókn málsins. „Fyrir liggur opinber vitnisburður landsliðsmanns um hýðingar á þeim bæ, og blóðugu hýðingarnar á ungu drengjunum eru á of margra vitorði til þess að það eigi að láta sem ekkert sé.“ Segist Ómar sjálfur eiga fimm afastráka á aldrinum 8-12 ára og ekki sætta sig við það, ef „hópur gangi í skrokk á þeim og misþyrmi þeim“ fyrir það eitt að þeir gangi inn í íþróttahreyfinguna.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.