Þrasað á þingi

Alþingismenn þrætta um hver skuli feðra sumarþing

„Okkur er legið það á hálsi að stöðva hér öll mál,“ sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í umræðum um störf þingsins í morgun. „Af hverju stefnir hér í sumarþing í boði ríkisstjórnarinnar? Er það vegna óbilgjarnar stjórnarandstöðu stjórnarandstöðu?“ spurði Ragnheiður og bætti við að sjálf gæti hún ekki tekið undir slíkan málflutning. Hún benti á að rúmlega fimmtíu lög og þingsályktunartillögur hafi verið samþykkt á þinginu frá byrjun maímánaðar.

„Svo þjösnalega er hægt að umgangast málfrelsið og lýðræðisreglurnar að það snúist upp í andhverfu sína,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir þingkona Samfylkingarinnar í umræðunni. „Menn eru að vísa til þess lýðræðislega réttar sem stjórnarandstaðan hefur til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. það er að snúast algjörlega upp í andhverfu sína. Upp í að minnihlutinn hér í þinginu haldi meirihlutanum í gíslingu.“ Ólína sagðist ekki skilja þá sem vitni í fyrri málþóf til að réttlæta núverandi málþóf. „Síðan höfum við sett ný þingskaparlög. Í þeim þingskapalögum er meðal annars inni ákvæði sem eiga að tryggja að málflutningur geti átt sér stað með eðlilegum þætti og að mál geti fengið lýðræðislega niðurstöðu.“ Ólína sagði að verið væri að vaða yfir lýðræðislegar leikreglur og vitnaði til þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins sem Ólína sagði miklast yfir því að málum væri hleypt í gegn. „Hún talaði eins og sú sem dagskrárvaldið hefur. Hún er ekki fulltrúi meirihluta sjónarmiða hér í þessum þingsal. Ég bið háttvirta þingmenn að staldra við og hugleiða á hvaða leið við erum. Auðvitað er það alveg ljóst að þetta sumarþing sem haldið verður hér er ekki í boði ríkisstjórnarinnar. Það er svikalaust í boði stjórnarandstöðunnar.“ Ólína sagði stjórnarandstöðuna hafa farið í málþóf í hverju málinu á fætur öðrum. „Að sjálfsögðu sitjum við hér í sumar til að afgreiða þau mál sem stjórnarmeirihlutinn hefur sett á dagskrá,“ sagði Ólína.

Líka lýðræðislega kosin

„Ef þetta sumarþing er í boði stjórnarandstöðunnar þá ætla ég að taka mér það bessaleyfi að afboða þetta sumarþing í hvelli,“ svaraði Ragnheiður ræðu Ólínu um sumarþing. „Það er náttúrulega algjörlega fáránlegt að koma hér og býsnast yfir því að lýðræðið fái sín ekki notið vegna þess að við erum hér að ræða mál sem eru illa unnin, seint fram komin og taka ekki tillit til athugasemda.“

Þá benti hún á að ákvæði þingskaparlaga sem heimila tafarlausa stöðvun umræðu og atkvæðagreiðslu væri ekki nýtt ákvæði þingskapa. Hún benti á að ákvæðið hafi til að mynda verið notað 30. mars 1949. „Hvað var að gerast hér? Það voru óeirðir á Austurvelli.“ Ragnheiður sagði nokkra þingmenn stjórnarmeirihlutans tala af vandlætingu um þá sem eru fulltrúar lýðræðislegra kosninga. „Ég hlaut líka kosningu í lýðræðislegum kosningum og það var jafn rétthár kjósandi sem kaus mig.“

Þegar Lilliputi sýndi spilin

„Mér bregður nokkuð við þetta, þegar þær þingræðishetjur sem hér riðu um héruð og sali fyrir bara nokkrum dögum og sögðust geta talað í allt sumar, allt haust og allt lífið til þess að stöðva hræðileg áform ríkisstjórnarinnar,“ sagði Mörður Árnason þingmaður Samfylkingarinnar í umræðum um störf þingsins. Hann sagði undarlegt að hlusta nú á sömu aðila kvarta yfir að halda skuli áfram þingi út júlí. „Auðvitað er það svo að samningar um afgreiðslu mála eru eðlilegur þáttur þingsstarfa. Það er hins vegar þannig að ef menn koma sér ekki saman og beita þrákefli og misbeita reglum sem við höfum um lýðræðislegan framgang hér í þinginu þá er leiðbeining í þingsköpum.“ Mörður benti á að 64. ákvæði þingskapa sem heimilar að stytta ræðutíma og jafnvel kalla eftir stöðvun umræðu og atkvæðagreiðslu. „Þegar greinin er nefnd eins og gert var hér um daginn þá er líka hrópað og hrínað. Talinn vera einhver sérstakur fasismi á ferðinni.“ Mörður sagði rétt að hafa í huga að þingsköp eru leiðbeining um hvernig þingstörf skuli fara fram. „Ég vil biðja formenn flokka og þingflokka að fara eftir þessum leiðbeiningum. Ef það verður ekki gert þá vil ég líka biðja háttvirta þingmenn sem hér eru staddir og til mín heyra að skoða hugsun um að við flytjum saman níu menn tillögu um eitthvað af þessu. Að við gætum meðalhófs, gefum öllum sinn góða og rétta tíma til að tala um veiðigjöldin og þau mál önnur sem hér standa til en að við virðum kjarnann í þeim leikreglum sem við störum hér eftir.“

Einar K. Guðfinnsson gagnrýndi orð Marðar. „Það sem háttvirtur þingmaður, Mörður Árnason var að gera - hann var að sýna spilin sín. Hann var eins og í barnagælunni Lilliputi Spilemann sem kjaftar nú frá.“ Einar sagði Mörð hafa uppvíst að þegar þingmenn stjórnarmeirihlutans færi að þreytast væri greinilega ætlun níu þingmanna að koma með tillögu um að ljúka umræðunni og krefjast atkvæðagreiðslu. „Nú vitum við það og fyrir það hljótum við að vera háttvirtum þingmanni Merði Árnasyni ákaflega þakklát.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.