Ertu að spá í að drífa þig í burtu? Langar þig að flytja á áhugaverðari stað? Prófa að búa hinum megin á hnettinum? Þú getur gert hvað sem þér dettur í hug en ef þú ætlar til Tokyo í Japan skaltu vera með bunka af seðlum í rassvasanum við komuna. Samkvæmt niðurstöðu úr árlegri könnun Mercer á dýrustu borgum heims er Tokyo þar í fyrsta sæti. Kostar kaffibollinn þar um 1100 krónur og bíóferðin litlar 3000 krónur. Íslenski launamaðurinn gæti þannig átt erfitt uppdráttar í stórborginni.
Ástæða hins háa verðs í Tokyo er að hluta til rakið til þess hversu sterkt japanska jenið er gagnvart dollaranum. Borgin hefur þó ávallt verið ofarlega á lista Mercer, að því er fram kemur í umfjöllun Wall Street Journal: Alltaf ein af dýrustu þremur borgunum síðan 2007, þegar hún var í fjórða sæti. Þá hefur borgin oftar en ekki verið sú dýrasta í heimi samkvæmt könnun Mercer allt frá árinu 1994. Borgirnar sem koma næst á eftir Tokyo eru meðal annars Luanda í Angóla og Moskva í Rússlandi. New York nær 33 sæti en Reykjavík nær ekki á lista 50 dýrustu borganna.
Svo kannski er bara best að vera hér eftir allt saman? Allavega á meðan maður er að safna.

Hemmi Gunn fallinn frá