Starfsmaður Sólningar grunaður um fjárdrátt

„Einn starfsmaður okkar sem liggur undir grun“

Starfsmaður Sólningar var handtekinn í gær grunaður um fjárdrátt í fyrirtækinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfestir í samtali við DV.is að einn hafi verið handtekinn og málið sé í rannsókn.

Örn Tryggvi Johnsen, framkvæmdastjóri Sólningar, staðfesti það í samtali við DV.is að einn starfsmaður Sólningar liggi undir grun varðandi fjársvik. „Ég get staðfest að það er einn starfsmaður okkar sem liggur undir grun varðandi fjársvik,“ segir Örn Tryggvi sem segir málið hafa uppgötvast innan fyrirtækisins en vildi ekki tjá sig um málsatvik. „Það er bara í höndum lögreglu. Við höfum ekki mynd á umfanginu enn sem komið er. Þetta er bara í rannsókn,“ segir Örn Tryggvi.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.