„Já, það er svoleiðis. Þetta er síðasta blaðið mitt svo ég læt af störfum á fimmtudaginn,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Fréttatímans, sem mun fylgja næsta tölublaði úr hlaði og síðan hverfa til annarra verkefna.
„Ég er að fara að vinna að verkefnum sem allt of snemmt er að segja til um hvað verður úr og verð með annan fótinn erlendis vegna þess,“ segir fréttastjórinn. Óskar Hrafn hefur starfað á blaðinu frá upphafi og farið mikinn á síðum blaðsins í skrifum um ýmiskonar viðskiptatengd fréttamál.
Óskar Hrafn er ekki bara fréttastjóri heldur er hann einn af hluthöfum Fréttatímans. Aðspurður hvað verði um þann hlut nú þegar hann hverfur til annarra starfa segir hann:
„Ég mun bara áfram eiga hann. Þetta er allt gert í góðu, engin illindi í þessu.“
Breytingar hafa verið í æðstu stöðum á Fréttatímanum undanfarið því stofnandi blaðsins og ritstjóri, Jón Kaldal, hætti á í apríl síðastliðnum.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi