Íslenskur drengur þorir ekki út vegna geitunga

„Ég er hræddur um að hann stingi mig“

Kóngulær eru vinir hans því þær drepa geitunga. Þetta sagði átta ára drengur í viðtali við Berglindi Häsler í Morgunútvarpi Rásar 2. Drengurinn er sjúklega hræddur við geitunga og er hjá sálfræðinga til að vinna bug á þessum ótta en hann var farinn að kvíða sumrinu.

Móðir drengsins segist hafa gert sér grein fyrir því í vor að þetta væri orðið vandamál þegar drengurinn vildi ekki fara út að leika sér með vinum sínum.

„Ég hleyp í burtu þegar ég sé geitunga,“ sagði drengurinn við Rás 2. „Af því ég er hræddur um að hann stingi mig, og mér finnst erfitt að vera úti,“ sagði drengurinn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.