Þetta er viðbjóðsleg lykt, bara eins og lykt af úldnum matvælum er. Það er svo vond lykt hérna að það er ekki hægt að skilja eftir opna glugga þá angar allt af þessari úldnu fiskifýlu,“ segir íbúi í Garðinum sem vill ekki láta nafns síns getið. Íbúinn segist alveg vera að gefast upp á megnri ólykt sem er í bænum og orsakast af fiskþurrkunarvinnslum sem standa sunnan við bæinn.
Hann segir ástandið vera svo slæmt að íbúar geti í vissum vindáttum ekki haft glugga á heimili sínu opna hvað þá að njóta þess að vera úti við.
Arnbjörn Eiríksson, verkstjóri í þurrkunarhúsi Nesfisks, segir úrbætur vera í gangi. „Það er verið að setja upp ósoneyðingarbúnað núna. Hann hefur reynst vel annars staðar, til dæmis á Húsavík. Það er samt alltaf einhver lykt sem fylgir svona og að mínu mati er hér um skipulagsslys að ræða. Þetta fyrirtæki er búið að standa hér í þrjátíu ár og þetta er iðnaðarhverfi. Íbúðabyggðin sem kom eftir á var höfð alltof nálægt þó að nægt pláss væri,“


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013