„Hef þurft að stela og stunda vændi“

Jenný Bára hefur háð harða baráttu við fíknina

Jenný Bára Sigurðardóttir er ekki orðin þrítug. Hún er þriggja barna móðir sem hefur háð harða baráttu við fíknina og fjármagnaði um tíma neysluna með þjófnaði og vændi.

Deild 32C er almenn bráðamóttökudeild. Jenný Bára hefur oft verið vistuð á deildinni vegna fíknivanda og geðraskana. Í þetta sinn hefur hún dvalið á deildinni í þrjár vikur samfleytt. Ætlunin er að gera hana tilbúna til þess að gangast undir áfengismeðferð. Hún hefur verið í harðri neyslu í mörg ár en er bjartsýnni nú en oft áður.

Deild 32C er læst deild. Hjúkrunarfræðingur nær í Jennýju Báru. Hún hafði í samtölum við blaðamann verið þung síðustu daga en mætir honum nú með bros á vör. Hún hafði fengið þær fréttir að laust pláss væri á Vogi.

Notaði einkamal.is til að selja sig

Jenný Bára er smágerð og barnsleg þrátt fyrir að neyslan hafi sett sitt mark á útlit hennar. Hún er klædd í náttföt, með hárið slegið og virðist afslöppuð í fasi. Neysla og óöryggi hefur markað líf Jennýar Báru frá barnæsku og henni fannst hún njóta lítillar ástúðar. Kynferðisleg misnotkun braut hana niður og hún var ung þegar hún gerði fyrst tilraunir til að skaða sjálfa sig líkamlega. Þrettán ára byrjaði hún í neyslu og fannst hún höndla frelsið.

„Ég hef þurft að stela og stunda vændi til að fjármagna neysluna mína. Það skortir alls ekki eftirspurnina eftir vændi á Íslandi og ég notaði mikið einkamal.is. Þetta eru alls konar menn, giftir og ógiftir, þekktir og óþekktir, öll flóran,“ segir Jenný.

Þetta er aðeins brot af ítarlegu viðtali við Jenný sem finna má í miðvikudagsblaði DV. Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild sinni ef þeir ýta á meira hér fyrir neðan

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.