Hárið fauk af í morgun

Safnaði 590 þúsund krónum

Selfyssingurinn Erna Kristín Stefánsdóttir lét raka af sér hárið í morgun til styrktar ABC-barnahjálparinnar. Erna safnaði 590 þúsund krónum gegn því að láta raka af sér hárið en hún ætlar að gefa það til krabbameinsfélagsins svo hægt verði að nýta það í hárkollu.

„Maður er alltaf að hugsa til þeirra. Maður reynir eins og maður getur að hjálpa þeim. Mig langaði að gera eitthvað sniðugt til að ná hárri upphæð svo þetta myndi skila sér eitthvað,“ sagði Erna Kristín við DV.is fyrir skemmstu um þessa söfnun.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.