80 milljóna sumarhöll eftir milljarða gjaldþrot

Félag Péturs Guðmundssonar fékk 3,5 milljarða afskrifaða

Á svipuðum tíma og kröfuhafar eignarhaldsfélags í eigu Péturs Guðmundssonar þurftu að afskrifa 3,5 milljarða króna vegna skuldar sem ekkert fékkst upp í hjá fyrirtækinu lauk byggingu 80 milljóna króna sumarbústaðar Péturs.

Óvíst er hvert markaðsvirði bústaðarins er en brunabótamatið hljóðar upp á áðurgreinda upphæð. Sumarbústaðurinn er í Grímsnes- og Grafningshreppi og er samkvæmt Fasteignaskrá 260 fermetrar.

Sumarbústaðurinn er með stærri sumarbústöðum landsins þó hann sé án efa ekki sá stærsti. Hann er á landinu Kiðjabergi og eru nokkrir aðrir sumarbústaðir í grenndinni. Bústaðurinn var kominn á teikniborðið um miðjan síðasta áratug en samkvæmt fasteignaskráningu varð Pétur eigandi að honum fyrripart ársins 2011. „Er ekki í lagi heima hjá þér?“ spurði Pétur þegar blaðamaður leitaði eftir upplýsingum um sumarhúsið áður en hann skellti á.

Meira um málið í DV í dag.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.