Stefán Vilbergsson forsvarsmaður Nordjobb á Íslandi segir að mál finnskrar stúlku, sem segir að bóndi sem réð hana í vinnu hafi þverbrotið ráðningarsamninga hennar, sé ekki alveg eins slétt og fellt og ætla mætti af umfjöllun fjölmiðla í morgun. Vísir greindi frá því að stúlkan, sem heitir Maija, og kom til Íslands frá Finnlandi til að starfa hjá Nordjobb hefði verið ósátt við starfskjör sín þegar hún mætti til starfa á bóndabæ.
Maija segist hafa þurft að vinna 12 tíma vaktir án yfirvinnu og segir að bóndinn hafi tjáð sér að hvað frídagana varðaði myndi hann sjálfur ákveða hvenær hún fengi að taka þá. Samkvæmt samningi átti hún að vinna á átta tíma vöktum og eiga tvo frídaga í viku.
„Þetta er bara ekki svona einfalt,“ segir Stefán í samtali við DV.is. Hann segir að konan hafi haft samband við Nordjobb á Íslandi og þau hafi strax farið að skoða aðstæður á bóndabænum. Í ljós kom að um algjört samskiptaleysi var að ræða milli starfsmanna og yfirmanns. „Bóndinn hafði ekki sagt þeim að í upphafi sumarsins væru ekki allir starfsmenn mættir og því væri vaktafyrirkomulag í uppnámi,“ segir Stefán það stæði til bóta nokkrum dögum seinna þegar tekist hefði að fullmanna stöður. „Vinnuveitandinn vissi ekki að hún væri þetta ósátt. Ég held að hér sé um samskiptaleysi að ræða. Vinnuveitandinn hefði átt að láta vita af þessu fyrirkomulagi og starfsfólkið hefði átt að láta vita af því að það væri ósátt,“ segir hann.
Hann segir að vissulega sé misjafnt hvernig aðstæður séu á markaðinum en að hann hafi talið að þarna hafi ekki verið um að ræða slæmar aðstæður. „Ég sá ekki betur en að þetta yrði bara mjög eðlilegt, en hún vildi vera örugg um öll sín mál og fannst þetta vera óöryggi að þetta væri ekki eins og talað var um í byrjun,“ segir Stefán.
„Það var ekki komin nein reynsla á þetta myndi ég segja.“
Stúlkan vildi sjálf fara burtu af bænum eftir fjögurra daga vinnu á bóndabænum og því varð hún samferða starfsfólki Nordjobb heim og er nú unnið að því að finna henni nýja vinnu.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi