Gabb: Sagði að snekkja hefði sprungið

Mikill viðbúnaður

Bandaríska strandsgæslan var með mikinn viðbúnað í gærkvöldi er hún leitaði að snekkju sem talið var að hefði sprungið úti fyrir ströndum New Jersey. Viðbúnaðinum hefur nú verið aflétt að miklu leiti og telur gæslan að um gabb hafi verið að ræða. Talið var að 21 farþegi væri á snekkjunni. Leitin í gærkvöldi og í nótt hefur engan árangur borið.

Strandgæslan fékk tilkynningu um að snekkja þarfnaðist neyðaraðstoðar 17 mílum utan við strandbæinn Sandy Hook í gærkvöldi. Var snekkjan sögð heita „Blind date“ og að þar væru rúmlega tuttugu farþegar. Þá var greint frá því að nærliggjandi bátur væri að sinna björgunarstörfum og að hann hefði bjargað farþegum úr sjónum. Eðli málsins samkvæmt var því viðbúnaðurinn mikill og fjölmargir sjúkrabílar og sjúkraflutningamenn biðu á höfninni til að flytja særða farþega á sjúkrahús.

Brugðist var hratt við en þegar að komið var að meintum slysstað var engin ummerki að sjá um sprengingu eða farþega hvað þá snekkjuna. Joe Klinker, yfirmaður gæslunnar, segir það óvenjulegt að fá tilkynningu um slys en sjá engin ummerki um slíkt.

Þá segir bandarískur eigandi tveggja snekkja sem kallaðar eru Blind date og Blind date II að sýnar snekkjur séu á sínum stað en að það sé til önnur snekkja sem heiti Blind date svo að hann viti til. Hún sé hinsvegar í Hollandi. Samkvæmt BBC er nú verið að skoða hvað verði gert í framhaldinu.

BBC greinir frá


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.