Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
23:00 › 11. júní 2012
Yfirmaður stærstu búddistareglu Suður-Kóreu hefur lýst því yfir að hann muni fá sérfræðinga til að annast fjármál eins klaustra Jogye-reglunnar eftir að munkar þar voru gripnir við ólöglegt veðmálabrask.
Ja Seung sagði að munkar reglunnar muni muni héðan í frá einbeita sér að andlegum málefnum.
Það vakti þjóðarathygli í síðasta mánuði að munkar náðust á falda myndavél þar sem þeir sáust reykja, stunda veðmál og drekka eins og sjóarar. Ekki er þó vitað hver tók myndbandið.

Hemmi Gunn fallinn frá