Formaður Bjartsýnis- flokks segir árás á Hlemmi eðlilega

„Þetta var svona venjulegt útkast eins og fer fram hundrað sinnum hverja einustu helgi á börum í Reykjavík“

„Þegar einhver hótar manni þá hefur maður rétt til þess að gera eitthvað,“ segir Einar Gunnar Birgisson formaður Bjartsýnisflokksins í samtali við DV. Hann sér sig knúinn til að stíga fram til varnar öryggisverðinum Andrési Björgvinssyni sem í síðustu viku var vikið úr starfi fyrir að hafa ráðist á vegfaranda á Hlemmi. Eðlileg viðbrögð hjá öryggisverðinum, segir hann.

Honum finnst árás öryggisvarðarins ekki vera af því tagi að hægt sé að kalla það ofbeldisverknað: „Það sá ekki nokkurn skapan hlut á þessum manni. Þetta var svona venjulegt útkast eins og fer fram hundrað sinnum hverja einustu helgi á börum í Reykjavík. Menn eru bara teknir hálstaki og þeim hent út.“

Manni ber að hlýða

Einar Gunnar gagnrýnir kjallaragrein Thelmu Ásdísardóttur starfsmanns hjá Drekaslóð sem birtist í DV í dag. Þar segist Thelma ekki fordæma manneskjuna sem beitir ofbeldi, heldur ofbeldið sjálft, en í greininni vísar hún til árásar öryggisvarðarins, sem náðist á filmu.

Á myndbandi af atvikinu sem blaðamaður Grapevine tók má sjá þegar öryggisvörðurinn slær vegfaranda í höfuðið, sparkar í hann og kastar honum utan í vegg. Aðspurður hvort hann telji eðlilegt að beita líkamlegu ofbeldi eins og öryggisvörðurinn gerði segir Einar Gunnar að öryggisvörðurinn hafi verið að verjast „andlegu ofbeldi“ af hálfu vegfarandans sem hafi öskrað og haft í hótunum. „Ef öryggisvörður vísar manni út þá ber manni að hlýða.“

Óþarfi að sparka

Einar Gunnar er á því að verið sé að gera úfladla úr mýflugu og hengja bakara fyrir smið. „Þetta er öryggisvörður. Það er hans starf að henda út fólki þarna. Hann gerir ekkert annað allan daginn en að vísa fólki út. Halda því úti. Ég hef séð hann henda út fólki og það er bara þetta venjulega — snúa upp á hendina og henda því eitthvað út.“

Aðspurður um það hvort honum finnist þó ekki að árás öryggisvarðarins hafi verið í grófari kantinum segir hann: „Ég veit það ekki, jú hann sparkaði í hann, það var auðvitað óþarfi, sparkaði í rassgatið á honum.“

Eðlileg viðbrögð

Hann segist vilja verja þennan mann þar sem hann þekki hann svolítið eftir að hafa notað strætó- kerfið. „Þetta er hinn ágætasti maður og hann er rosalega stressaður afþví að það er alltaf verið að ráðast að honum af dópistum og geðsjúklingum. Fólk veit ekkert hvernig Hlemmur er en oft er það svona eins og útibú frá Kleppi.“

Hann segir ekkert óeðlilegt við árás öryggisvarðarins, sem margir hafa þó fordæmt. „Getur ekki verið að venjulegt fólk missi stjórn á sér í þessari stöðu og taki manninn hreinlega og hendi honum út?“ Í svoleiðis aðstæðum sé skiljanlegt og eðlilegt að bregðast við með líkamlegu ofbeldi. „Já, það er allavega mjög eðlilegt að bregðast þannig við þegar verið er að hóta manni.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.