Vill Steingrím fyrir landsdóm

Segir hann bera ábyrgð á tugmilljarða tjóni skattgreiðenda

„Ástæða er til að Alþingi gangi þegar í stað úr skugga um hvort ekki er full ástæða til að vísa máli Steingríms J. Sigfússonar ráðherra og Gylfa Magnússonar ráðherra til meðferðar fyrir Landsdómi,“ segir hæstaréttarlögmaðurinn og fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins Jón Magnússon í pistli á bloggi sínu.

Í pistlinum sem ber fyrirsögnina „Ber Alþingi að ákæra Steingríms J. Sigfússon ráðherra?“ segir Jón að Steingrímur beri umfram aðra ábyrgð á tugamilljarðatjóni skattgreiðenda vegna Sp/Kef. Hann hafi engar málsbætur og ætti þessvegna að vera búinn að segja af sér. Það sem eftir standi sé að sjóður sem átti rúmlega 5 milljarða eigið fé í árslok 2008 þegar tekið hafði verið tillit til hrunsins er orðinn að engu.

„Eftir stendur að sá sem ber pólitíska ábyrgð á þessu tjóni ríkisins upp á tugi milljarða er Steingrímur J. Sigfússon sem gerði þessi mál að sínum. Ef til vill gæti Gylfi Magnússon fyrrum viðskiptaráðherra og mótmælandi einnig borið ábyrgð á þessu tugmilljarða tjóni skattgreiðenda.“ Segir Jón að lokum að ráð væri að „endurvekja nefnd Atla Gíslasonar“ alþingismanns í þessu skyni.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.