Þúsundir hafa flúið heimili sín á Fílabeinsströndinni í Vestur-Afríku, eftir að sjö friðargæsluliðar frá Sameinuðu þjóðunum og átta almennir borgarar voru drepnir í árásum á þorp vestast í landinu. AFP-fréttastofan hefur þetta eftir embættismanni Sameinuðu þjóðanna og íbúum sem búa við landamærin við Líberíu.
Bæjarstjórinn í landamærabænum Tai sagði AFP um síma að þar væru menn skelfingu lostnir. Fólkið hefiði gripið litla böggla, fyllt af nauðsynjum og flýði nú fótgangandi. Ung kona sem komst yfir landamærin segist hafa gengið í gegnum óbyggðir með barnið sitt á bakinu. Hún viti ekki um fjölskyldu sína.
Stjórnvöld í Líberíu hafa lokað landamærunum sem liggja austur að Fílabeinsströndinni. Óstöðugt ástand hefur verið á Fílabeinsströndinni frá því að stríðandi fylkingar sömdu um vopnahlé fyrir tveimur árum.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi